Gjafabréf
Nú líður að jólum og margir farnir að velta fyrir sér jólagjöfum til vina og vandamanna og fjölmörg fyrirtæki eru einnig að leita eftir skemmtilegum leiðum til að gleðja starfsfólk og viðskiptavini. Gjafabréf Reykjavík Bags eru upplögð tækifærisgjöf og henta auðvitað vel í jólapakkann!Með því að gefa gjafabréf frá Reykjavík Bags ert þú að styðja við bakið á íslensku hugviti og hönnun en í dag eru það liðlega 30 íslenskir hönnuðir sem selja vörur sínar í versluninni.
Gjafabréfin eru til í mismunandi útgáfum, 5.000 kr., 10.000 kr., 15.000 kr. og 20.000 kr.
