Um okkur
Verslunin Reykjavík Bags er að Skólavörðustíg 2 í Reykjavík og fagnar nú eins árs afmæli sínu og er því jafngömul hruninu. Verslunin var svar okkar við þeirri neikvæðu umræðu sem heltók allt íslenskt samfélag fyrir ári síðan og við vildum sína og sanna að við Íslendingar hefðu áræði og kjark til að velta upp tækifærum og framkvæma nýjar hugmyndir. Árangurinn af verkefninu hefur verið góður og í dag eru liðlega 30 íslenskir hönnuðir innanborðs og verslunin er komin til að vera.
Þann 1. nóvember opnuðum við nýja vefsíðu til að kynna vörur okkar og þá hönnuði sem starfa með okkur. Ef þú hefur áhuga á að koma þínum vörum á framfæri í verslun okkar skaltu senda okkur tölvupóst á netfangið shop@reykjavikbags.is
Þar sem rýmið í versluninni er takmarkað höfum við því miður ekki getað tekið til sölu allar þær vörur sem okkur hafa verið boðnar frá íslenskum hönnuðum. Til að ráða bót á því bjóðum við hönnuðum nú þann möguleika að selja og kynna vörur sínar hér á vefsíðunni okkar. Smelltu hér til að skoða þann möguleika nánar.
Það er von okkar að þú styðjir við bakið á þessu skemmtilega verkefni með því að líta til okkar á Skólavörðustíg 2. Þar er opið alla virka daga frá kl. 11-18 og á laugardögum frá kl. 11-16. Gaman væri líka að fá frá þér ábendingar, hugmyndir og tillögur að því hvernig við getum gert góðan hlut enn betri!
Bestu kveðjur!
Baldvin, Finnur & Guðmundur
