Volcano, iceland, flight, eruption, design Reykjavík Bags - Íslenska

Íslenska

Um okkur
Verslunin Reykjavík Bags var opnuð að Skólavörðustíg 2 í nóvember 2008 og hefur allar götur síðan lagt áherslu á að bjóða viðskiptavinum sínum töskur, fylgihluti og skart frá íslenskum hönnuðum eingöngu.  Í dag erum við í samstarfi við liðlega 30 hönnuði sem selja vörur sínar í gegnum verslun okkar.  
Gjafabréfin eru vinsæl
Með því að gefa gjafabréf frá Reykjavík Bags ert þú að styðja við bakið á íslensku hugviti og hönnun en í dag eru það liðlega 30 íslenskir hönnuðir sem selja vörur sínar í versluninni.
 
Gjafabréfin eru til í mismunandi útgáfum, 5.000 kr., 10.000 kr., 15.000 kr. og 20.000 kr.

Hafðu samband við okkur í síma 561 1110 eða sendu okkur tölvupóst á netfangið
shop@reykjavikbags.isef þú vilt panta gjafabréf eða fá nánari upplýsingar.  Einnig er hægt að kaupa gjafabréf í vefverslun
 
Vefverslun ReykjavíkBags 

Þar sem rýmið í versluninni er takmarkað höfum við því miður ekki getað tekið til sölu allar þær vörur sem okkur hafa verið boðnar frá íslenskum hönnuðum.  Til að ráða bót á því höfum við nú opnað þessa vefsíðu sem hefur það að markmiði að kynna og selja íslenska hönnun hérlendis og erlendis og inniheldur fróðleik um hvern hönnuð og þær vörur sem viðkomandi framleiðir.

 

Langar þig að vera með?

Okkur langar að bjóða þér að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur og gefa þér kost á að kynna þig og þínar vörur á vefsíðunni gegn afar vægu gjaldi og er boðið upp á tvær mismunandi leiðir:

 

Leið A

  • Síða með upplýsingum um þig á íslensku og ensku ásamt ljósmynd af þér.
  • Allt að 20 vörunúmer.
  • Hverri vöru geta fylgt allt að 3 ljósmyndir.
  • Innsetningu á efni, vörum, ljósmyndum og öðrum upplýsingum.
  • Daglegt viðhald (taka út vörur sem eru uppseldar/ekki fáanlegar).
  • Tenging við greiðslugátt.
  • Mánaðarleg skýrsla með upplýsingum um fjölda heimsókna á síðurnar þínar.
  • Mánaðargjald: kr. 1.500

 

Leið B

  • Síða með upplýsingum um þig á íslensku og ensku ásamt ljósmynd af þér.
  • Allt að 50 vörunúmer.
  • Hverri vöru geta fylgt allt að 3 ljósmyndir.
  • Innsetningu á efni, vörum, ljósmyndum og öðrum upplýsingum.
  • Daglegt viðhald (taka út vörur sem eru uppseldar/ekki fáanlegar).
  • Tenging við greiðslugátt.
  • Mánaðarleg skýrsla með upplýsingum um fjölda heimsókna á síðurnar þínar.
  • Mánaðargjald: kr. 2.500

 

Ef þörf er fyrir 50 vörunúmer eða fleiri þá semjum við um slíkt sérstaklega.

 

Fyrirkomulag samstarfsins

Þegar þú ákveður að kynna þig og bjóða vörur þínar til sölu á vefsíðu Reykjavík Bags þá hefur þú samband við okkur símleiðis í síma 561 1110 eða sendir okkur tölvupóst á netfangið shop@reykjavikbags.is 

 

Ferlið

Lýsa má samstarfsferlinu með einföldum hætti á þessa leið:
  1. Við gerum með okkur samkomulag.
  2. Þú sendir okkur ljósmynd/ljósmyndir af þeim vörum sem þú hyggst kynna og bjóða til sölu ásamt Excel-skjali þar sem vörurnar eru taldar upp.
  3. Þú sendir okkur ljósmynd af þér og þann kynningartexta sem þú kýst.
  4. Við setjum upp síðuna þína og vörurnar þínar á vefsvæðið.
  5. Þegar allt er tilbúið verður sérstök kynning á þér og þínum vörum á forsíðu vefsins og sendur er sérstakur tölvupóstur á póstlistann okkar til að vekja athygli á þér.
  6. Þegar vara er seld í gegnum vefsíðuna annast Borgun um örugga greiðslugátt fyrir viðskiptavini okkar. 
  7. Við fáum samstundis tilkynningu um að tiltekin vara sé seld.  Við sendum þér upplýsingar um hvaða vöru er að ræða, nafn og póstfang kaupanda og þú sérð um að senda viðkomandi vöruna sé hún ekki til staðar í verslunni að Skólavörðustíg 2.
  8. Við gerum upp við þig um hver mánaðarmót með innleggi á þinn bankareikning fyrir tímabilið 20.-20. hvers mánaðar.

 

Komdu með hópinn þinn í heimsókn!

Við höfum tekið á móti fjölda hópa til okkar í Reykjavík Bags og hafa það verið mjög ánægjulegar stundir.  Ef hópurinn þinn er að fara út á lífið í miðbænum er gráupplagt að koma við hjá okkur fyrst, þiggja léttar veitingar, fá fróðleik um verslunina, hönnuðina sem eru að vinna með okkur og fræðast um efnistök og innblástur þeirra.
Saumaklúbbar, vinnustaðahópar, vinahópar og bara hvaða klíka sem er - allir eru velkomnir!
Þessar heimsóknir fara yfirleitt fram eftir hefðbundinn afgreiðslutíma, mánudaga til föstudaga en einnig er hægt að koma slíku við á laugardögum ef þess er óskað.
Hafðu samband við okkur, tilgreindu fjölda og ósk um dagsetningu og við verðum í sambandi um hæl.